Nú er ljóst að íslenska karlalandsliðið í handbolta verður í efsta styrkleikaflokki á heimsmeistaramótinu 2027. Ísland var í öðrum styrkleikaflokki á síðasta heimsmeistaramóti en þökk sé góðum árangri á nýliðnu EM færist Ísland upp um flokk. Þá tryggði 4. sætið á EM einnig sæti á HM þá þegar. Ísland mun því losna við að vera með sterkustu liðum mótsins í riðlakeppni HM. Mótið verður í Þýskalandi 13. til 31. janúar. Drátturinn í riðlakeppni verður 10. júní en ekki liggur enn fyrir hvar Ísland mun leika. Leikið er í riðlakeppni í Kiel, München, Magdeburg og Stuttgart. Milliriðlar verða í Hannover og Köln og öll útsláttarkeppnin verður einnig í Köln. Staðan ræðst enn frekar þegar undankeppni Evrópu er lokið. Styrkleikaflokkur 1: Danmörk Þýskaland Króatía Ísland Portúgal Svíþjóð Egyptaland Argentína Styrkleikaflokkur 2: Frakkland eða Tékkland Finnland/Svartfjallaland/Slóvenía Noregur/Tyrkland/Rúmenía Serbía/Litáen/Ungverjaland Spánn/Georgía/Ísrael Sviss eða Ítalía Bosnía/Kósovó/Færeyjar Úkraína/Slóvakía/Norður-Makedónía Styrkleikaflokkur 3: Holland/Grikkland/Belgía Austurríki/Pólland/Litáen Brasilía Barein Túnis Grænhöfðaeyjar Síle Lið frá Norður-Ameríka og Karíbahafseyjum Styrkleikaflokkur 4: Katar Kúveit Japan Alsír Angóla Úrúgvæ Boðslið 1 (wild card) Boðslið 2( wild card)