Seldur frá Liverpool síðasta sumar en gæti komið til baka á næstu mánuðum

Liverpool gæti verið á leiðinni að endurheimta enska varnarmanninn Jarell Quansah frá Bayer Leverkusen í sumar, samkvæmt fréttum á Englandi. 23-ára gamli Quansah, sem kom upp í akademíu Liverpool, var seldur til Leverkusen fyrir um £35m síðasta sumar en félagið setti inn kaupákvæði sem gerir þeim kleift að kalla hann aftur til Anfield frá 2027. Lesa meira