Fýkur hárið hjá hárprúða United manninum?

Leikmenn Manchester United gætu bjargað hinum hárprúða Frank Ilett úr 493 daga langri prísund í dag. Frank sagðist ekki ætla að klippa hár sitt þangað til að liðið myndi vinna fimm leiki í röð. Hann byrjaði á þessu í október 2024 og síðan þá hefur gengi United verið nokkuð slakt. En undir stjórn Michael Carrick hefur liðið unnið fjóra leiki í röð og vinni liðið West Ham í dag fýkur hár Ilett. Sigrar United frá því Carrick tók við: Manchester City Arsenal Fulham Tottenham Liðið leikur gegn West Ham klukkan 20:15 í kvöld. Þessi maður hefur tekið yfir algrímið hjá ákveðnum hópi fólks en aðrir koma af fjöllum og hafa aldrei heyrt um kauða. Ilett gengur undir nafninu The United Strand á samfélagsmiðlum og er kominn með 1,2 milljónir fylgjenda á Instagram. Stjórinn Carrick hefur einnig tjáð sig um málið. Carrick sagði nýlega um málið: „Ég er meðvitaður um þetta. Börnin mín gerðu mér grein fyrir þessu. En ég er fagmaður og þetta mun ekki fara inn í liðsfundinn. Ég skil hvað er að gerast og það fær mig til að brosa, en þetta mun ekki hafa nein áhrif í lok dags.“ Frank hyggst horfa á leikinn í beinu streymi á samfélagsmiðlum sínum. Auk þess hefur hann lofað að gefa hárið til góðgerðarmála ef United vinnur fimmta leikinn.