Ó­víst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skóla­skyldu

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ekki upplýsingar um hversu mörg börn á Íslandi sækja ekki skóla, þrátt fyrir skólaskyldu í landinu. Ráðuneytið safnar ekki upplýsingum frá sveitarfélögum um skólasókn barna með kerfisbundnum hætti en miðlægum nemendagrunni verður ætlað að veita ráðuneytinu heildarsýn yfir stöðu mála og hægt verði að nýta gögn þaðan til að bæta gæði skólastarfs, þjónustu, stefnumótun og forgangsröðun stjórnvalda í skólamálum.