Fulltrúadeildarþingmennirnir Thomas Massie, Repúblikani, og Ro Khanna, Demókrati, fóru saman í gær og fengu að sjá Epstein-skjölin óritskoðuð. Þeir segja að á tveimur klukkustundum hafi þeir fundið að minnsta kosti sex nöfn manna sem kunna að hafa brotið af sér.