Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá mörgum að nú standa Vetrarólympíuleikarnir yfir á Ítalíu. Þar keppa fimm Íslendingar sem eru einum fleiri en þegar Ísland sendi fyrst keppendur. Fyrstu Vetrarólympíuleikarnir voru haldnir árið 1924 í Chamonix í Frakklandi og svo á fjögurra ára fresti til og með 1936 en eftir það lögðust Ólympíuleikar af í 12 ár vegna seinni heimsstyrjaldarinnar. Þegar þráðurinn var tekinn upp að nýju árið 1948 og haldnir Vetrarólympíuleikar í St. Moritz í Sviss fóru fjórir íslenskir keppendur. Líklega hefði verið hægt að senda fleiri frá Íslandi en vegna gjaldeyrishafta fékkst aðeins leyfi fyrir fjórum keppendum. Þrír þeirra kepptu í alpagreinum, þeir Guðmundur Guðmundsson, Magnús Brynjólfsson og Þórir Jónsson og Jónas Ásgeirsson keppti í skíðastökki. Þrjú bræðrapör í ellefu manna flokki Fjórum árum síðar, árið 1952, þegar næstu Vetrarólympíuleikar voru haldnir í Ósló í Noregi voru engin gjaldeyrishöft og auðveldara um vik að senda stóran og myndarlegan flokk íslenskra keppenda. Óslóarfararnir urðu ellefu talsins þar sem fjórir kepptu í alpagreinum, sex í skíðagöngu og einn í skíðastökki. Merkilegast er þó að þrjú pör íslenskra bræðra kepptu á þessum Ólympíuleikum í Ósló árið 1952. Bræðurnir Haukur (f. 1930, d. 2006) og Jón Karl Sigurðssynir (f. 1932, d. 2019) frá Ísafirði kepptu í alpagreinum, í bruni, stórsvigi og svigi. Þeir voru 20 og 22 ára þegar þeir kepptu á Óslóarleikunum árið 1952. Þess má geta hér að sonur Jóns Karls, Sigurður Jónsson (f. 1959, d. 1996) átti eftir að feta í fótspor föður síns og keppti á tvennum Vetrarólympíuleikum, 1976 í Innsbruck og 1980 í Lake Placid. Ísafjarðarbærður líka í skíðagöngu En áfram um bræðrapörin þrjú sem kepptu í Ósló en hin þeirra kepptu í skíðagöngu. Annars vegar Gunnar (f. 1930, d. 2022) og Oddur Péturssynir (f. 1931, d. 2018) frá Ísafirði. Þeir kepptu báðir í 18 km skíðagöngu en Gunnar var einnig hluti af boðgönguliði Íslands á leikunum. Oddur fór aftur á Ólympíuleikana fjórum árum síðar, 1956 í Cortina d‘Ampezzo á Ítalíu og keppti þar í 15 og 30 km göngu. Mývetningabræður í skíðagöngu Á leikunum í Cortina 1956 keppti Jón Kristjánsson einnig í sömu skíðagöngugreinum og Oddur Pétursson, en Jón hafði farið með Matthíasi bróður sínum á Óslóarleikana árið 1952 og þar koma þriðju bræðurnir til sögunnar. Jón (f. 1920, d. 1996) og Matthías (f. 1924, d. 1998) voru elstir af þessum þrennum bræðrum í Ósló eða 28 og 34 ára. Þeir voru Mývetningar, fæddir á Litlu-Strönd. Matthías keppti í 50 km göngunni í Ósló en Jón í 18 og 50 km göngunum auk þess að vera hluti af íslensku boðgöngusveitinni. Fjórum árum síðar í Cortina keppti Jón í 15 og 30 km göngu. Íslensku ólympíufararnir í Ósló árið 1952 voru meðal neðstu keppenda í sínum greinum og eftir leikana fékk Þjóðviljinn þá til að gera upp leikana. Í fyrirsögn blaðsins sem dró saman orð Íslendinganna sagði: „Þurfum meiri þjálfun, meiri keppnisreynslu við góða menn. Við erum ekki ánægðir enn.“ Fleiri íslensk systkini á Ólympíuleikum Fleiri dæmi eru um íslensk systkini sem keppt hafa á sömu Ólympíuleikunum þó að það hafi aldrei fleiri en eitt systkinapar keppt á sömu leikunum, ekki þrjú eins og í Ósló 1952. Frjálsíþróttabræðurnir Haukur og Örn Clausen úr Reykjavík kepptu á Sumarólympíuleikunum í London árið 1948 og urðu þá fyrstu íslensku bræðurnir til að keppa á Ólympíuleikum. Á Vetrarólympíuleikunum í Cortina árið 1956 kepptu systkinin Steinþór og Jakobína Valdís Jakobsbörn frá Ísafirði í alpagreinum. Systkinin Bryndís og Magnús Már Ólafsbörn kepptu svo í sundi á Sumarólympíuleikunum í Seoul árið 1988. Þau fetuðu þar með í fótspor móður sinnar Hrafnhildar Guðmundsdóttur sem keppti í sundi á tvennum Ólympíuleikum. Ein bræðratenging til viðbótar tengd 1952 En íslensk systkini hafa líka keppt á sitt hvorum Ólympíuleikunum. Fyrst ber þar að tengja okkur við margnefnda Vetrarólympíuleika í Ósló árið 1952. Þar keppti Siglfirðingurinn Ari Guðmundsson nefnilega í skíðastökki, en átta árum síðar á vetrarleikunum í Squaw Valley í Bandaríkjunum mætti Skarphéðinn Guðmundsson, bróðir Ara, til leiks og keppti einnig í skíðastökki. Tómas Leifsson frá Akureyri keppti í alpagreinum í Innsbruck árið 1976 og átta árum síðar í Sarajevo; árið 1984 keppti svo yngri systir hans, Nanna Herborg Leifsdóttir, á Ólympíuleikunum þar, einnig í alpagreinum. Tómas og Árni Óðinsson, sem keppti líka á Ólympíuleikunum í Innsbruck 1976, voru í viðtali í Mannlega þættinum á Rás 1 í síðustu viku þar sem þeir rifjuðu upp þátttöku sína á Vetrarólympíuleikunum. Þátttaka Íslendinga á Vetrarólympíuleikunum í Ósló árið 1952 var merkileg. Í ellefu manna keppendahópi Íslands mátti þar finna þrjú pör af bræðrum.