Boðaðar aðgerðir stjórnvalda til að bregðast við Bakkakotsmálinu eru gott fyrsta skref, segir Jón Magnússon, formaður Samtaka vistheimilabarna. Forsætisráðherra boðaði fyrir helgi sálfræðiaðstoð fyrir drengina í Bakkakoti, rannsókn á Bakkakoti, úttekt á stöðu fósturbarna og skoðun á sannirnisbótakerfinu. Jón segir að einhver verði að bera ábyrgð. „En þetta er mjög gott til að byrja með. Vantar að vísu inn í þetta að það beri einhver ábyrgð. Ef þú stelur samloku í búð ferðu í steininn. Ef þú misþyrmir barni í óratíma og lemur, þá er bara ríkið sem þarf að borga einhverjar smánarbætur eins og var gert í Breiðavíkurmálunum og öllum þeim vistheimilamálum,“ sagði Jón í viðtali á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun. Jón segir að hann hafi rætt við aðra sem vistaðir voru í Breiðavík um bótaupphæðir. Talað hafi verið um að fólkið fengið tvær til fjórar milljónir króna í sanngirnisbætur og hámarkið yrði fjórar til sex milljónir. Enginn hafi svo hann viti til fengið hæstu bæturnar. „Þó svo að bæturnar séu ekki það sem þetta snýst um, heldur hafa bætur eins og sektir fælingarmátt. Ef enginn þarf að borga og enginn ber ábyrgð þá gerist þetta aftur og aftur og aftur.“ Engin sanngirni hafi verið í bótunum. „Nei, ríkið var bara að semja við ríkið um hvað þeir vildu borga. Mér fannst þetta ekki sanngjarnt og þetta voru alls ekki sanngirnisbætur.“