Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum halda prófkjör

Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum hefur ákveðið að halda prófkjör til að velja frambjóðendur á lista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Prófkjörið fer fram föstudaginn 13. mars og framboðsfrestur er til 27. febrúar klukkan sex síðdegis. Flokksbundnir Sjálfstæðismenn sem búa í Vestmannaeyjum og eru kjörgengir í næstu kosningum geta boðið sig fram í prófkjörinu. Þeir þurfa að skila inn framboðsyfirlýsingu með meðmælum minnst 20 flokksbundinna Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Sjálfstæðisflokkurinn er í minnihluta í bæjarstjórn. Í Vestmannaeyjum.RÚV / Oddur Þórðarson