Vatn frá Ölfusi í sádiara­bískri íþróttaþvotta­vél

Íslenski drykkjarframleiðandinn Icelandic Glacial er nýr styrktaraðili liðs á LIV-mótaröðinni í golfi. Sádar stofnuðu mótaröðina til höfuðs PGA-mótaröðinni árið 2022 til þess að fegra eigin ímynd með svokölluðu íþróttaþvætti.