Boða nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi

Nýtt framboð býður fram lista í Grímsnes- og Grafningshreppi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Framboðið ber nafnið Betri sveit – fyrir okkur öll. Það er að hluta sprottið upp úr deilum innan sveitarfélagsins milli núverandi meirihluta í hreppstjórn og íbúa í frístundabyggð. Í tilkynningu segir að markmiðið með framboðinu sé að stjórnsýsla sveitarfélagsins verði opnari og að stuðlað verði að sanngjörnum ákvörðunum sem byggi ætíð á hagsmunum samfélagsins í heild. „Framboðið Betri sveit vill aukið samráð. Vilja íbúa má meðal annars kanna með ráðgefandi íbúakosningu. Markmiðið skal ætíð vera að efla með markvissum hætti lýðræðisleg vinnubrögð í sveitarfélaginu, verja fé til framkvæmda eftir forgangsröðun íbúanna sjálfra og með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi.“ Andrés Bertelsson verður oddviti listans. Andrés segir að hópurinn sem standi að framboðinu hafi að hluta spunnist út frá hópi fólks sem búi í frístundahúsum en þroskast ansi hratt í þá átt að sækjast eftir íbúajafnrétti og íbúalýðræði; krafan sé að komið sé eins fram við íbúa svæðisins. Hann segir að framboðið snúist í raun um jafnrétti og telur að í litlu sveitarfélagi sé einfalt að leita álits allra íbúa.