Kristrún ekki áfram en upp um þrettán sæti frá síðustu ÓL

Alls voru 89 keppendur sem hófu keppni í undankeppni sprettgöngunnar á skíðagöngusvæðinu í Tesero í dag en ljóst að aðeins þriðjungur keppenda, eða 30 efstu kæmust í úrslit. Hringurinn var 1,5 km og Kristrún gaf allt í eins og hún hafði sagst ætla að gera. Hún kom í mark á 4:09,30 mín., og gekk vel seinni partinn, því hún var í 64. sæti eftir 0,8 km, en endaði í 61. sæti þegar allir voru komnir í mark. Hún komst því ekki áfram í úrslit en gerði þó mun betur en á síðustu Ólympíuleikum í Beijing í Kína fyrir fjórum árum. Þar endaði hún í 74. sæti og því hækkaði Kristrún sig upp um þrettán sæti í sprettgöngunni á milli leika. Svíar röðuðu sér í þrjú efstu sætin í undankeppni sprettgöngunnar í dag. Linn Svahn átti besta tímann eða 3:26,01 mín. Kristrún var því 33,09 sek. frá tíma hennar en 13,02 sek. frá 30. sæti, síðasta sætinu inn í úrslitin sem fara fram síðar í dag. Kristrún keppir næst í 10 km skíðagöngu á fimmtudaginn.