Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hafa troðið upp í hálfleik Ofurskálarinnar á sunnudaginn virðist Benito Antonio Martínez Ocasio, betur þekktur sem Bad Bunny, hafa eytt öllum myndum og myndböndum af Instagram-reikningi sínum. Það eina sem stendur eftir er vefslóð sem vísar á nýjustu plötu tónlistarmannsins og þá hefur hann einnig eytt forsíðumynd sinni af samfélagsmiðlinum X.