Leikfélag Flateyrar frumsýnir á miðvikudaginn nýtt og spennandi íslenskt leikrit eftir tvítuga Flateyringinn Ölmu Sóleyju Önnudóttur Wolf. Sýningin ber heitið ,,Með kjafti og klóm“ og gerist á afskekktum bóndabæ á Íslandi undir lok 18. aldar. Þegar ókunnug hjón koma óvænt á bæinn fer af stað atburðarás sem enginn sér fyrir endann á. Leyndarmál, spenna og […]