Dagur Benediktsson keppti í sinni annarri grein á Vetrarólympíuleikunum í morgun, sprettgöngu. Dagur ræsti 68. í röðinni og endaði í 79. sæti á 3:40.09, 32,72 sekúndum frá Johannes Høsflot Klæbo sem átti hraðasta tímann í undankeppninni. 30 efstu fara áfram í úrslitin sem hefjast 10:35 á RÚV 2 , bæði kvenna- og karlakeppnin. Kristrún Guðnadóttir keppti í undankeppni kvennakeppninnar í morgun og varð í 61. sæti. Þrítugasti maðurinn inn í úrslitin var Svíinn Johan Häggström á 3:18.73 svo Dagur var rúmri 21 sekúndu frá sæti þar. Dagur keppir næst í 10 km göngu á föstudaginn.