Kolbrún Magnúsdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, hefur ákveðið að ganga til liðs við Framsóknarflokkinn. Þessu greinir hún frá á Facebook-síðu sinni. Kolbrún segist hafa ákveðið að halda sínu pólitíska starfi áfram með Framsókn eftir vandlega íhugun. Þar telji hún reynslu sína, þekkingu og krafta nýtast best. „Þar finn ég nú meiri samhljóm við áherslur og þá nálgun sem Framsókn leggur til grundvallar í bæjarstjórn.“ Hún segir mikilvægt að samfélagið styðji við fjölskyldulíf, öryggi og fjölbreytt tækifæri fyrir börn og ungmenni á sama tíma og vel sé hlúð að eldra fólki og þeim sem þurfi aukinn stuðning í samfélaginu. Aðsend mynd