Fjarðarheiði lokuð frá því í gærkvöld

Vegurinn um Fjarðarheiði hefur verið lokaður frá því í kringum miðnætti vegna ófærðar og slæms veðurs. Ökumenn höfðu fest bíla sína á heiðinni þar sem aðstæður til aksturs voru erfiðar. Starfsmenn á vegum Vegagerðarinnar hófu snjómokstur í morgun en ákveðið hefur verið að bíða átekta til hádegis þegar dregur úr veðri. Hálka eða hálkublettir eru víða á vegum. Snjóþekja eða éljagangur er á Öxnadalsheiði og Almenningum og á Norðausturlandi er snjóþekja á nokkrum leiðum, svo sem á Hófaskarði, á Hólaheiði og Brekknaheiði. Nokkuð er um krapa á Fagradal, Hlíðarvegi og víðar á Austurlandi. Ófært er á Vatnsskarði eystra, Öxi og Breiðdalsheiði. Fréttir var uppfærð 10:47 með nýjum upplýsingum um Fjarðarheiði.