Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands

Glæpasamtök sem stóðu að kókaínsmygli frá Suður-Ameríku til Evrópu hafa verið leyst upp í kjölfar samræmdrar rannsóknar yfirvalda á Íslandi, í Litháen og á Spáni, með stuðningi Europol og Eurojust.