„Hann er kominn í rétta stöðu“

Miðjumaðurinn Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, hefur leikið einstaklega vel í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hann hefur komið að 12 mörkum United í síðustu tíu leikjum liðsins. Í 22 leikjum í deildinni í vetur hefur hann skorað sex mörk og gefið tólf stoðsendingar.