„Það er mikill þungi í málinu“

Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur og staðgengill lögreglustjóra hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir að rannsóknin á smyglinu hafi staðið yfir í rúmt ár. Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á metmagn af kókaíni í fyrra. 24 voru handteknir, þar af ellefu á Íslandi, þegar umfangsmikill fíkniefnahringur var upprættur á miðvikudag í síðustu viku í samræmdum aðgerðum lögregluyfirvalda í nokkrum löndum. Talið er að hópurinn hafi smyglað miklu kókaíni milli landa. Auk þeirra ellefu sem voru handteknir á Íslandi voru sex handteknir í Litháen, fjórir á Spáni, tveir í Belgíu og einn í Danmörku. Í tilkynningu Europol í dag kemur fram að glæpagengið hafi teygt sig frá frá Suður-Ameríku til Evrópu. Burðardýr voru notuð til að smygla kókaíni milli landa og þannig reynt að koma í veg fyrir að lögregla kæmist á snoðir um hverjir skipulögðu smyglið. Talið er að gengið hafi selt fíkniefni fyrir fjórar milljónir evra, andvirði um 600 milljóna króna. Eitt mál kom lögreglunni á sporið Lögreglan á Suðurnesjum lagði í fyrra hald á metmagn af kókaíni. Alda Hrönn segir grun um að einn og sami hópurinn hafi skipulagt og staðið að meirihluta innflutningsins. Hún segir að eitt mál hafi komið lögreglu á sporið, mál sem kom á borð lögreglunnar í febrúar í fyrra. Rannsóknin hefur því staðið yfir í rúmt ár. „Við röktum okkur strax á þessar slóðir og þá í rauninni var ekkert aftur snúið. Og erum auðvitað síðan búin að tengja mjög mörg mál sem upp komu.“ Alda Hrönn segir mikinn þunga í málinu og að svo verði áfram. Hún segir að ekki hafi verið teknar ákvarðanir um hvort einhverjum verði vísað úr landi vegna málsins.