Vill opna á verðbréfalán líf­eyris­sjóða sem ætti að auka skortsölu á markaði

Fjármálaráðherra áformar að leggja fram frumvarp sem myndi meðal annars í fyrsta sinn gera íslenskum lífeyrissjóðum kleift að lána áfram hluta af hlutabréfum eða skuldabréfum í þeirra eigu, sem gæti þá skapað forsendur fyrir aukinni skortsölu meðal fjárfesta, en það ætti að bæta í senn virkni og verðmyndum á markaði.