Ísraelsk stjórnvöld ætla að taka yfir enn meira landsvæði á Vesturbakkanum og koma upp fleiri landtökubyggðum á palestínsku landi. Bandaríkin, Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar styðja ekki áformin. Öryggisráð ísraelskra stjórnvalda, sem forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú leiðir, samþykkti þessi áform og kynnti á sunnudag. Gangi þau eftir herða ísraelsk stjórnvöld tökin á Vesturbakkanum og ryðja veginn fyrir enn fleiri landtökubyggðir. Samkvæmt Oslóarsamkomulaginu skiptist Vesturbakkinn í þrjú svæði. Svæði A sem Palestínumenn eiga að ráða yfir, B þar sem Palestínumenn og Ísrael eiga að fara með sameiginlega stjórn og loks C sem Ísraelar ráða yfir, það er um 60 prósent af Vesturbakkanum og þar er fjöldi ísraelskra landtökubyggða sem eru ólöglegar samkvæmt alþjóðalögum. Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels, segir áformin til þess fallin að festa rætur Ísraels á svæðinu og kæfa hugmyndir um palestínskt ríki. Áform ísraelska stjórnvalda hafa mætt andstöðu úr ýmsum áttum. Stéphane Dujarric talsmaður framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna ítrekar að allar landtökubyggðir séu ólöglegar. Evrópusambandið tekur í sama streng og fordæmir áformin sem brjóti í bága við alþjóðalög. Í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu er ekki tekið jafn djúpt í árinni en þar er andstaða við að Ísrael innlimi Vesturbakkann ítrekuð. Netanjahú er einmitt á leiðinni til Bandaríkjanna, hann á fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta á morgun og líkur á að málið verði rætt á þeim fundi.