Þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu tillögu um að frumvarp um afturköllun alþjóðlegrar verndar skyldi tekið fram fyrir umræður um almannatryggingar á þingfundi í dag. Frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun verndar er fimmta mál á dagskrá fundarins, á eftir frumvarpi félagsmálaráðherra um almannatryggingar sem mjög hefur verið deilt um. Var það vilji stjórnarandstöðunnar að víxla þessum málum. Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins sagði að málið hafi ítrekað verið sett aftast á dagskrá á eftir þungum málum og þar af leiðandi hafi það ekki komist að. Bent var á að undir þinghlé í desember hafi meirihlutinn skyndilega lagt mikla áherslu á að ná frumvarpi um afturköllun verndar í gegn og því sæti það furðu að meirihlutinn dragi lappirnar ítrekað að klára málið. Ásakanir um leikþætti á víxl Þingmenn meirihlutans kölluðu tillögu stjórnarandstöðunnar leikrit og sáu enga ástæðu til að gera breytingar á dagskránni. „Málið var á dagskrá í gær, komst ekki vegna þess að stjórnarandstaðan var upptekin við að tefja fyrir kjarabótum aldraðra og öryrkja. Við erum að hefja þriðja dag í umræðu um það góða mál sem ég hef væntingar til að klárist í dag,“ sagði Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Deilurnar héldu svo áfram eftir atkvæðagreiðsluna undir liðnum fundarstjórn forseta og var forseti þingsins sakaður um þöggunartilburði, ásakanir sem þingforseti frábað sér.