Sameinuðu þjóðirnar segja að tíminn sé að renna út fyrir vannærð börn í Súdan og hvetja heiminn til þess að hætta að horfa fram hjá vandanum. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna vöktu athygli á því í liðinni viku að hungursneyð væri að aukast í vestanverðu Darfur-héraði í Súdan. Milljónir væru hungraðar, á flótta og kæmust ekki í neyðaraðstoð sökum átaka milli súdanska hersins og vígasveita. Í hluta Norður-Darfur er meira en helmingur allra barna alvarlega vannærður, sagði Ricardo Pires, talsmaður UNICEF, á blaðamannafundi í Genf í dag. Alvarlegt hungur og vannæring sjáist fyrst hjá börnum og það sé að aukast í Súdan. Hiti, niðurgangur, öndunarfærasýkingar, lágt hlutfall bólusetninga, óhreint vatn og lélegt heilbrigðiskerfi valdi því að sjúkdómar sem alla jafna sé auðvelt að meðhöndla verði banvænir vegna þess hve vannærð börnin eru. Aðgengi að aðstoð dragist saman, fjármögnun dugi ekki til og átök í landinu magnist óðum. Tugþúsundir hafa látið lífið í stríðinu í Súdan, sem braust út í apríl 2023, og ellefu milljónir eru á flótta.