Alls voru 51.853 íslenskir ríkisborgarar með skráð lögheimili erlendis þann 1. desember sl. Flestir voru skráðir í Danmörku eða alls 12.786 einstaklingar. Næst flestir eða 9.348 einstaklingar voru skráðir í Noregi og í þriðja sæti var Svíþjóð þar sem 9.229 íslenskir ríkisborgarar voru skráðir með lögheimili. 61,7% íslenskra ríkisborgara sem eru með skráð lögheimili erlendis eru á Norðurlöndunum. Íslenskir ríkisborgarar voru með skráð lögheimili í […]