Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt

Gabríel Douane Boama og yngri bróðir hans voru í gær dæmdir til fangelsisvistar fyrir líkamsárásir. Yngri bróðirinn, sem er aðeins átján ára gamall, var sakfelldur fyrir tvær sérstaklega hættulegar árásir en önnur þeirra var hnífstunguárás og dæmdur til tveggja ára og sex mánaða fangelsisvistar. Gabríel var dæmdur fyrir þátttöku í annarri árásinni og dæmdur til eins árs fangelsisvistar. Hann á að baki langan sakaferil þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára. Von er á öðrum dómi yfir honum innan fárra vikna.