Bíll valt eftir árekstur í Ártúnsbrekku

Bifreið valt á hliðina eftir árekstur í Ártúnsbrekku, segir varðstjóri stoðdeildar hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann lýsir árekstrinum sem minni háttar og segir ökumann bílsins hafa komist út úr honum upp á eigin spýtur. Sjúkrabíll og dælubíll voru sendir á vettvang slyssins. Enginn hefur þó verið fluttur á sjúkrahús frá slysstað, segir varðstjórinn. Mynd úr safni.RÚV / Ragnar Visage