Norski skíðagöngukappinn Sturla Holm Lægreid opnaði sig í viðtali eftir að hann vann til bronsverðlauna í 20 km skíðaskotfimi á Vetrarólympíuleikunum. Lægreid táraðist og viðurkenndi framhjáhald í viðtali eftir keppni við NRK. „Ég er með svolítið sem ég vil deila með aðila sem gæti ekki hafa verið að horfa í dag. Fyrir hálfu ári hitti ég ást lífs míns, heimsins fallegustu og góðhjörtuðustu manneskju. Fyrir þremur mánuðum gerði ég mistök lífs míns og hélt framhjá henni. Ég sagði henni það fyrir viku og þetta hefur verið versta vika lífs míns,“ sagði Lægreid. Hér má sjá viðtalið. „Ég var nú þegar með gullmedalíu í lífinu mínu. Ég er viss um að flestir munu sjá þetta á annan hátt en ég hafði bara augu á henni. Íþróttirnar hafa þurft að taka annað sæti síðustu daga. Já, ég vildi óska þess að ég gæti deilt þessu með henni.“ Gull - Johan-Olav Botn - Noregur Silfur - Eric Perrot - Frakkland Brons - Sturla Holm Lægreid - Noregur Verður að viðurkenna hlutina Lægreid hefur verið í uppnámi síðustu viku en náði að einbeita sér að keppni dagsins eftir hugljúft myndband að heiman. Hann telur mikilvægt að viðurkenna framhjáhaldið. „Ég reyni að vera góð fyrirmynd en ég gerði svolítið heimskulegt. Félagið mitt sendi mér myndband að heiman og ég notaði það sem innblástur í dag. Eins og ég segi, ég reyni að vera góð fyrirmynd en ég verð að viðurkenna það þegar ég geri eitthvað rangt. Þú verður að viðurkenna hlutina þegar þú gerir eitthvað sem er á móti því sem þú stendur fyrir og særir einhvern sem þú elskar,“ bætti hann við. Lægreid vann gull í Peking fyrir fjórum árum og á fjórtán medalíur á heimsmeistaramótum. „Ég vil ekki gefa upp hver þetta er. Hún hefur þurft að eiga við alveg nóg síðustu vikur, en ég vona að það sé ljós við enda ganganna fyrir okkur bæði og að hún geti haldið áfram að elska mig,“ sagði hann að lokum.