Úrslitakosturinn að loka fyrir aðgengi að Reynisfjöru þegar hætta vofir yfir

„Reynisfjara er eins og margir aðrir áfangastaðir í einkaeigu þannig að það þarf samstarf opinberra aðila og einkaaðila til að tryggja öryggi ferðamanna,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra þegar hún er beðin um viðbrögð við öryggismálum í fjörunni frægu. Ráðherrann segir frumvarp í undirbúningi sem lagt verður fram næsta haust og lýtur að öryggi á ferðamannastöðum. Hún segir það úrslitakost að hreinlega verði lokað fyrir aðgengi að Reynisfjöru þegar talið sé að hætta vofi yfir – en það verði að gera í samtali við landeigendur. „Ferðamenn þurfa náttúrulega líka að átta sig á því að náttúran okkar er óútreiknanleg og það er sú staðreynd sem gerir hana bæði svo dásamlega en hættulega. Þannig við verðum að halda áfram með upplýsingagjöf, búa til þennan styrka ramma og halda áfram að byggja upp Ísland sem eftirsóknarverðan og öruggan áfangastað.“ Atvinnuvegaráðherra boðar frumvarp í haust sem ætlað er að bæta öryggi á áfangastöðum ferðamanna. Hún segir ferðamenn taka upplýsingagjöf með mjög ólíkum hætti – sumir hlusti en aðrir hunsi. „Sumir taka þetta til sín og aðrir rekast í skiltin á leiðinni fram hjá“ Hanna Katrín bendir á að nýlegt landbrot í Reynisfjöru hafi verið nálægt upplýsingaskiltum sem þar eru. Hlutaðeigandi séu vitanlega að skoða þessi mál. „Við erum bara að vinna þetta eins og staðan er núna. Við erum að upplifa að það eru öll brögð á því hvernig ferðamenn taka svona upplýsingagjöf. Sumir taka þetta til sín og aðrir rekast í skiltin á leiðinni fram hjá.“ Það verði að halda áfram að finna leiðir til að koma upplýsingum til þeirra sem eigi leið um fjöruna. Mögulega sé hægt að nota tækni með nýjum hætti, til dæmis í formi skilaboða sem berist í síma. „Úrslitakosturinn er auðvitað bara að loka aðgenginu með harkalegri aðgerðum en nú er gert, þegar hætta er talin vofa yfir,“ segir Hanna Katrín. Það verður þó ekki gert nema í samvinnu við landeigendur.