Uppbygging 390 nýrra íbúða í Hafnarfirði hafin

Skóflustunga var tekin að nýju uppbyggingarverkefni við Hjallahraun í Hafnarfirði í dag sem felur í sér uppbyggingu 390 íbúða. Í fyrsta áfanga uppbyggingarinnar verða byggðar 177 íbúðir og þar af eru að minnsta kosti 60 íbúðir ætlaðar fyrstu kaupendum í gegnum hlutdeildarlán. Verkefnið hefur verið í bið en er nú farið af stað, í kjölfar fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og breytingum á fyrirkomulagi hlutdeildarlána. „Breytingarnar sem við gerðum nýverið á hlutdeildarlánakerfinu gjörbreyta stöðunni. Með því að ríki, sveitarfélög og uppbyggingaraðilar gangi sameinuð til verks rjúfum við kyrrstöðuna og tryggjum framboð á íbúðum sem henta fyrstu kaupendum,“ er haft eftir Ragnari Þór Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, í fréttatilkynningu um uppbygginguna. Ragnar Þór tók skóflustunguna ásamt Hermanni Jónassyni, forstjóra Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, Pálmari Harðarsyni, framkvæmdastjóra Þingavangs, Kristínu Hrönn Guðmundsdóttur, aðstoðarbankastjóra Íslandsbanka, og Valdimari Víðissyni, bæjarstjóra Hafnarfjarðar. „Við höfum lagt áherslu á það frá upphafi að hér verði fjölbreyttar íbúðir sem henta öllum í samfélaginu,“ segir Valdimar. „Það er gleðilegt að sjá gott samstarf á milli byggingarverktakanna og ríkisstjórnarinnar í þessu verkefni,“ er haft eftir Valdimari. Þá hafi bæjarfélagið átt í góðu samstarfi við Þingvang og sýnt sveigjanleika hvað varðar skipulagsmál, segir bæjarstjórinn. „Ekki hefur slegið slöku við í íbúðauppbyggingu hér í Hafnarfjarðarbæ síðustu ár og við ætlum að axla þá ábyrgð áfram.“ Verkefnið er það fyrsta sem stjórnvöld og byggingaraðilar ráðast sameiginlega í eftir að húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar var kynntur. Um þriðjungur íbúðanna er ætlaður fyrstu kaupendum í gegnum hlutdeildarlán. Íbúðum fjölgað frá fyrri hönnun Byggingarfyrirtækið Þingvangur hafði undirbúning að uppbyggingu á íbúðum í Hjallahrauni en hætti við verkefnið um mitt ár 2024, vegna hárra vaxta og óvissu um sölu. „Nú hefur Þingvangur endurhannað fyrsta áfanga verkefnisins svo að a.m.k. 60 íbúðir passi inn í ramma hlutdeildarlána. Íbúðunum hefur því fjölgað og meðalstærð þeirra minnkuð frá fyrri hönnun,“ segir í fréttatilkynningunni. Samkvæmt viljayfirlýsingu sem var undirrituð í dag er samstarfið á milli stjórnvalda og uppbyggingaraðila grundvöllur þess að hægt sé að fara af stað með verkefnið. „Þingvangur hefur beðið lengi eftir að geta hafið þessa uppbyggingu og núna er það mögulegt þegar félags- og húsnæðismálaráðherra leggst á vogarskálarnar með okkur ásamt Hafnarfjarðarbæ, fjárfestum og Íslandsbanka,“ er haft eftir Pálmari Harðarsyni, framkvæmdastjóra Þingvangs, í fréttatilkynningunni. „Þetta er í fyrsta sinn sem komin er einhver mynd af forsölusamningi fyrir okkur uppbyggingaraðilana til að geta akkerað verkefnin í upphafi og hannað íbúðirnar sérstaklega fyrir hlutdeildarlánin og líka fyrir almenna markaðinn því við viljum gera allar gerðir íbúða fyrir öll.“