„Enda er það fullorðna fólkið sem oftast kaupir þessi snjalltæki fyrir börnin sín og hjálpar þeim að búa til aðganga“

Yfir 70% 9 ára barna eiga farsíma og 54% þeirra eiga leikjatölvu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Fjölmiðlanefndar. 75% stúlkna í framhaldsskóla segjast eyða miklum tíma á netmiðlum en hlutfallið er 66% hjá strákum. Könnunin var lögð fyrir nemendur í 59 grunnskólum og 24 framhaldsskólum í september. Yngstu þátttakendurnir voru nemendur í 4.bekk. Þetta er í þriðja sinn sem þessi rannsókn er framkvæmd. Yfir 40% barna frá 11 ára aldri segja foreldra sína hjálpa sér að stofna reikning á samfélagsmiðlum, jafnvel þótt miðlarnir séu bannaðir yngri en 13 ára. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn. Hlutfall þeirra sem eiga farsíma hefur lækkað Málþing um samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna var í Hátíðarsal Háskóla Íslands í dag. Þar kom fram að um og yfir 80% allra barna nota miðilinn Youtube reglulega. 6% barna í 4-7.bekk nota samfélagsmiðilinn Instagram en í framhaldsskóla er hlutfallið komið upp í 90%. Meirihluti svarenda segir að foreldrar sínir hafi kennt sér á samfélagsmiðla. Í september var í fyrsta sinn spurt út í notkun á gervigreind. Niðurstöður sýna að börn, allt niður í 9 ára, nota gervigreind meðal annars til að eiga við hana samskipti. Þóra Jónsdóttir og Ingibjörg Kjartansdóttir eru meðal þeirra sem stóðu að rannsókninni. Þær segja að samfélagsmiðlar séu almennt ekki fyrir börn yngri en 13 ára og hlutfall þeirra sem eru yngri en 13 ára hefur fækkað á samfélagsmiðlum, miðað við það sem var áður. Þó sýna niðurstöður rannsóknarinnar að stór hluti barna hefur fengið aðstoð foreldra við að stofna reikning á samfélagsmiðlum. Ingibjörg segir það þó ekki endilega vera neikvætt. Niðurstöðurnar geti einnig verið að sýna að forvarnir og fræðsla til foreldra sé að skila sér. „Fyrst fannst mér þetta ekki fallegar tölur. En svo var ég að velta fyrir mér, því við viljum að foreldrar eigi samtal við börnin sín um samfélagsmiðlanotkun. Hvort það gæti ekki verið að allavega hluti af þessum foreldrum séu góðu foreldrarnir sem eru að sýna börnum og lóðsa þau um hvernig þau eigi að nota þau.“ Yrði glöð ef snjallsímar og samfélagsmiðlar yrðu bannaðir á morgun Kamilla Inga Ellertsdóttir er ein þeirra sem var með erindi á málþinginu í dag. Hún segist sjálf aðallega nota samfélagsmiðilinn Snapchat. Hún vinnur með börnum og segist sjá aukningu í að ung börn, allt niður í 8 ára, séu með stóra snjallsíma og á samfélagsmiðlum. Að hennar mati þarf samfélagið að leysa þetta vandamál í heild. „Ekki bara klína því á ungmenni séu of mikið í símanum enda eru það fullorðna fólkið sem oftast kaupir þessi snjalltæki fyrir börnin sín og hjálpa þeim að búa til aðganga og svoleiðis.“ Hvað myndir þú gera ef snjallsímar væru bannaðir á morgun og allir samfélagsmiðlar. Hvernig myndu þín samskipti við félaga breytast? „Ég myndi persónulega ekki kvarta. Ég yrði virkilega, virkilega sátt held ég,“ segir Kamilla. Símabann í skólum og aldurstakmark á samfélagsmiðlum verður til umræðu í Torginu sem er á dagskrá RÚV í kvöld klukkan 19:45.