Útiloka ekki að glæpahópnum sé stýrt af Íslendingum erlendis

Ellefu voru handteknir hér á landi í umfangsmikilli aðgerð Europol gegn skipulagðri brotastarfsemi í síðustu viku. Þeir eru bæði íslenskir og erlendir ríkisborgarar. Þrettán til viðbótar voru handtekin í öðrum Evrópuríkjum grunuð um aðkomu að umfangsmiklum flutningi fíkniefna frá Suður-Ameríku til Evrópu. Menn með sögu um að tengjast fíkniefnainnflutningi Eru þetta menn sem eru þekktir fyrir þetta hjá lögreglu að vera í fíkniefnainnflutningi? „Þeir sem standa að baki hópnum, það eru eitthvað sem við vissum af, þeir eiga feril hér á landi, já,“ segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur lögreglunnar á Suðurnesjum og staðgengill lögreglustjóra. Umfangsmikið smygl fyrir ári síðan upphafið Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á metmagn kókaíns í fyrra og hópurinn er talinn hafa staðið að meirihluta innflutningsins. Umfangsmikill fíkniefnainnflutningur í febrúar í fyrra var upphafið að aðgerðinni. „Í raun og veru er upphafspunkturinn fyrir ári síðan, mál upp í febrúar í fyrra. Upplýsingar sem við fengum í gegnum það mál leiddu okkur í ákveðin spor. Við fórum að tengja saman önnur mál líka og þá fór boltinn að rúlla og úr varð þessi aðgerð í síðustu viku,“ segir Alda. Aðgerðin hafði staðið yfir í tæpt ár og náði hámarki á miðvikudaginn í síðustu viku þegar 24 voru handteknir. Ellefu hér á landi, sex í Litáen, fjórir á Spáni, tveir í Belgíu og einn í Danmörku. Glæpagengi sem teygir anga sína frá Suður-Ameríku til Evrópu hafði smyglað ýmsum efnum, en aðallega kókaíni, frá Suður-Ameríku til Íslands í gegnum Spán. Burðardýrin erlendir ríkisborgarar í viðkvæmri stöðu Alla jafna voru efnin falin innan um aðrar vörur í gámum en komu hingað til lands með burðardýrum, sem eru lang oftast erlendir ríkisborgarar. „Sem hafa engin tengsl við Ísland. Þau eru í jafnvel viðkvæmri stöðu, í neyslu eða einhverjum fjárhagserfiðleikum,“ segir Alda Hrönn. Þau séu send frá hinum ýmsu stöðum til Íslands en hópurinn sem sjái um skipulagið sé frá Evrópu. Talið er að síðasta árið hafi hópurinn selt fíkniefni fyrir fjórar milljónir evra, eða 600 milljónir króna. Peningurinn hafi svo verið þvættaður til dæmis með kaupum á fasteignum og öðru slíku í Litáen. Þeir handteknu sjá um skipulag og dreifingu „Þeir sem við fórum í aðgerðir gegn í síðustu viku þeir gegna flestir, að okkar mati, stærra hlutverki en að vera burðardýr svokölluð,“ segir Alda. Þeir hafi komið að skipulagi og dreifingu. Níu af þeim handteknu sátu þegar inni og fimm voru með síma í klefanum Tveimur af þeim ellefu sem voru handteknir hefur verið sleppt. Þeir eru taldir eru hafa haft minna hlutverk. Hinir níu voru þegar í fangelsi, annaðhvort í gæsluvarðhaldi eða að sitja af sér aðra dóma, þegar þeir voru handteknir. Í klefum fimm þeirra fundust símtæki. Er þetta algengt og hafið þið ekki áhyggjur af því að þeir komist aftur í slík tæki og haldi áfram? „Jú, auðvitað er það líklegt eða það getur allavega alveg verið en þetta er ekki algengt,“ segir Alda. „Við höfum það frá fangelsismálayfirvöldum að þetta er sjaldgæft í rauninni og það er mjög áhugavert að í níu klefum hafi fundist símtæki í fimm,“ segir hún. „Við teljum það sýna ákveðna mynd um að skipulagið og ætluð brot kunni að vera áframhaldandi.“ Talið að starfseminni sé stýrt erlendis frá Þeir sem handteknir voru hér eru bæði íslenskir og erlendir ríkisborgarar en brotastarfseminni er stýrt að utan, ekki frá Íslandi. Teljið þið að það séu þá Íslendingar sem stýra henni annars staðar frá? „Við getum í rauninni ekkert sagt til um það, en mögulega. Það er eitthvað sem við getum ekki farið út í núna beint,“ segir Alda Hrönn.