Torgið í beinni: Símabann í skólum og aldurstakmark á samfélagsmiðlum

Margir skólar hafa sett sér reglur um símanotkun en nú er rætt um það á þingi hvort setja eigi lög um þessi mál. Einnig hefur ráðherra sagt að hún vilji hækka aldurstakmark á samfélagsmiðlum. Þetta verður til umræðu á Torginu að þessu sinni sem sent er út frá Helgafellsskóla í Mosfellsbæ.