Tölurnar tala sínu máli um vanda Landspítalans. „Staðan hefur verið óviðunandi,“ segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans Þar eru núna 110 manns sem hafa lokið meðferð á Landspítalanum en bíða eftir plássi á hjúkrunarheimili. „Við höfum verið að þrauka síðustu ár, ég held að það sé alveg óhætt að segja það, með tilheyrandi álagi á starfsfólkið og neikvæðum áhrifum á upplifun og jafnvel þjónustu sem sjúklingar hafa verið að fá vegna örtraðar sem jafnan er fyrir hendi á bráðamóttökunni,“ segir Runólfur. „En þróunin síðustu mánuði, það er nú tilefni þess að við sendum minnisblað til ráðuneytisins, allra síðustu mánuði og síðustu vikur, þá hefur þróunin verið síversnandi.“ Staðan á bráðamóttökunni var slæm fyrir en nú er hún afleit, segir forstjóri spítalans. Þar bíður fólk í rúmlega tvo sólarhringa eftir legurými. Í ofanálag er krafa um hagræðingu, en tækifærin til þess að hagræða eru takmörkuð að mati forstjórans. Á bráðamóttökunni eru 50-60 manns sem bíða eftir að komast á legudeild. Þessir sjúklingar bíða að meðaltali í rúma tvo sólarhringa eftir legurými. „Þetta er veruleg lenging frá því sem hefur verið. Staðan var slæm fyrir en þetta er orðið afleitt,“ segir Runólfur. „Við óttumst náttúrlega verulega um öryggi sjúklinga, auk þess sem er spurning hversu mikið okkar frábæra starfsfólk heldur út,“ bætir hann við. Runólfur segir að færa þurfi allt að 50 manns af spítalanum á hjúkrunarheimili til að þau endurheimti legurými. „Ég veit vel að það væri búið að ganga í það verk ef slík úrræði væru í augnsýn, en við verðum með einhverjum hætti að búa þau til.“ Í minnisblaði til heilbrigðisráðuneytisins var stungið upp á því að hjúkrunarheimilin tvímenni í herbergi tímabundið. Heilbrigðisráðherra sagði í fréttum RÚV í síðustu viku að Landspítali hefði forgang að hjúkrunarheimili sem opnar á næstunni í Urðarhvarfi með pláss fyrir næstum 100 manns. Takmörkuð tækifæri til hagræðingar Í ofanálag er allmikil niðurskurðarkrafa á Landspítala fyrir þetta ár, eða allt að fimm milljarðar. Kostnaðarauki vegna kjarasamningana vegur þungt. Runólfur segir viðræður um það standa yfir við heilbrigðisráðherra. „Við undirbúum okkur náttúrlega fyrir það versta en vonum það besta. Við erum að skoða hvaða möguleika við höfum til að hagræða á móti þessu. En eins og álagið hefur verið á þjónustu spítalans, sem ég verð að segja er gríðarlegt. Þá eru tækifæri til slíkrar hagræðingar mjög takmörkuð,“ segir Runólfur.