Börsungar með Viktor Gísla í rammanum völtuðu yfir Alicante

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í stórliði Barcelona áttu ekki í neinum vandræðum með lið Alicante í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og unnu að lokum nítján marka sigur 51-32.