Alþjóðlegt samstarf lykilatriði í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi

„Þegar við erum að berjast við skipulagða brotastarfsemi, þá verðum við að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi. Annars náum við ekki árangri,“ segir Kolbrún Benediktsdóttir, fulltrúi Íslands hjá Eurojust. 24 voru handteknir í samræmdum aðgerðum Europol gegn skipulagðri glæpastarfsemi, þar af ellefu á Íslandi. Unnið hefur verið að rannsókninni í tæpt ár en hún teygir anga sína til Litháens og Spánar. Lögregla hefur notið aðstoðar Europol og Eurojust við rannsóknina. Kolbrún vonar að slík rannsóknarsamvinna hafi áhrif á fíkniefnaflutning til Íslands. „Við teljum okkur hérna vera að fara í þá sem standa á bak við og eru að skipuleggja innflutning fíkniefna til landsins. Vonandi hefur það, og ég hef trú á því að það hafi, einhver áhrif.“ Saksóknarar frá yfir 40 ríkjum vinna saman hjá Eurojust. Boðleiðir styttast með þessari samvinnu, segir Kolbrún. Auðveldara sé að deila rannsóknargögnum við rannsóknir sem mörg ríki koma að. Þetta er eitt af fyrstu málunum sem þar sem Ísland hefur aðkomu að sameiginlegum rannsóknarteymum Eurojust. „Við getum þá með miklu einfaldari hætti skipst á rannsóknargögnum og sönnunargögnum, í stað þess að þurfa að senda þau með flóknum ferlum eins og réttarbeiðnum. Þá getum við rannsakað málin samhliða í þessum löndum og unnið saman, skipst á rannsóknargögnum, sem auðvitað einfaldar framhald málsins.“ Gögnin nýtast þá síðar við málsmeðferð í viðkomandi ríkjum. Kolbrún segir fjölþjóðlega hópa sem stunda skipulagða glæpastarfsemi starfa þvert á landamæri. Þá þurfi yfirvöld að geta gert það líka. „Þegar við erum að berjast við skipulagða brotastarfsemi, þá verðum við að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi. Annars náum við ekki árangri.“ Fjölþjóðlegir hópar stunda glæpastarfsemi þvert á landamæri og það kallar á samvinnu yfirvalda í mismunandi ríkjum, segir fulltrúi Íslands hjá Eurojust. 24 voru handteknir í samræmdum aðgerðum Europol, þar af 11 á Íslandi.