Dedrick Basile var atkvæðamestur í liði Tindastóls með 23 stig.Mummi Lú Tindastóll er í góðri stöðu í ENBL Evrópukeppninni í körfubolta karla eftir 98-92 sigur gegn Brussels. Sigurinn tryggði Tindastól heimavallarrétt þegar haldið verður í útsláttarkeppni. Brussel var tuttugu stigum yfir í öðrum leikhluta en munurinn var aðeins fjögur stig, 47-51, í hálfleik. Mikil spenna var í fjórða leikhluta en að lokum unnu heimamenn sex stiga sigur, 98-92. Tindastóll er nú í 4. sæti í deildakeppni deildarinnar en er öruggt með eitt af átta efstu sætunum sem tryggir heimavallarrétt.