Hárið fer ekkert eftir jafntefli

Benjamin Sesko skorar fyrir United í kvöld.IMAGO Manchester United og West Ham gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í kvöld. Þar með mun hinn hárprúði Frank Ilett þurfa að bíða enn lengur eftir að fara í klippingu. Sá ætlar sér að klippa hár sitt þegar United vinnur fimm leiki í röð og hefur nú þegar beðið í 493 daga. Thomas Soucek kom West Ham yfir á 50. mínútu með marki af stuttu færi. Varamaðurinn Benjamin Sesko bjargaði United með snyrtilegri afgreiðslu í uppbótartíma leiksins. United er í 5. sæti með 44 stig en West Ham er í 18. sæti með 26 stig. Önnur úrslit: Chelsea 2 - 2 Leeds Everton 1 - 2 Bournemouth Tottenham 1 - 2 Newcastle