Símabann í skólum og aldurstakmark á samfélagsmiðlum voru til umræðu í Torginu í kvöld. Meirihluti viðmælenda var hlynntur símabanni í grunnskólum landsins en deilt var um hvern árangur og markmið slíks banns myndu hafa í för með sér. Þórhildur Halldórsdóttir, sálfræðingur og kennari við Háskólann í Reykjavík, segir að ekki sé hægt að sjá að símabann í grunnskólum sporni gegn andlegri vanlíðan barna eða bæti námsárangur. Börnin hafi aðgang að tækinu heima við og því sé erfitt að dæma um hver raunveruleg áhrif símabanns í grunnskólum séu. Hér má sjá þáttinn í heild sinni. Í umræðuþættinum Torginu í kvöld var rætt um símabann í skólum og samfélagsmiðlabann. Almennur samhljómur virtist vera á meðal áhorfenda um að setja ætti á samfélagsmiðlabann fyrir ungmenni yngri en 15 ára á Íslandi. Rithöfundurinn Gunnar Helgason fór hörðum orðum um snjallsíma og áhrif þeirra á ungmenni. Þá sagði hann að nær allir væru snjallsímafíklar, ekki bara yngri kynslóðin heldur einnig fullorðna fólkið. Í umræðuþættinum Torginu í kvöld var rætt um símabann í skólum og samfélagsmiðlabann. Almennur samhljómur virtist vera á meðal áhorfenda um að setja ætti á samfélagsmiðlabann fyrir ungmenni yngri en 15 ára á Íslandi. Sjálfur tók Gunnar þá ákvörðun í haust að hætta á samfélagsmiðlum að undanskildu Facebook, hann segir að samfélagsmiðlaleysið hafi reynst honum vel og skammtímaminnið hafi bæst til muna. Ábyrgð fullorðna fólksins Ungmenni í Ungmennaráði Samfés segja að almennt séu ungmenni hlynnt símalausum skólum, kostir símaleysisins séu fleiri en gallarnir. Þau segja það einnig mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um sína eigin símanotkun, ábyrgðin sé beggja vegna. „Það er fullorðna fólkið sem kaupir tækin fyrir börnin sín og hjálpar þeim að búa til aðgang á samfélagsmiðlunum þannig að mér finnst mikilvægt að fullorðna fólkið fatti að ekki sé hægt að klína sökinni á börnin sín því að upprunalega eru það þau sem aðstoða okkur við þetta.“ Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir ungmenni hafa kallað eftir því að samræmi sé á milli skóla og landshluta hvað varðar símabann í skólum. Í umræðuþættinum Torginu í kvöld var rætt um símabann í skólum og samfélagsmiðlabann. Almennur samhljómur virtist vera á meðal áhorfenda um að setja ætti á samfélagsmiðlabann fyrir ungmenni yngri en 15 ára á Íslandi. Standi til að setja á aldurstakmark á Íslandi Aldurstakmark á samfélagsmiðlum var einnig rætt í þætti kvöldsins, meirihluti áhorfenda úr sal sagðist hlynntur samfélagsmiðlabanni fyrir ungmenni undir 15 ára aldri. Inga Sæland segir standa til að setja á reglur um aldurstakmark á samfélagsmiðla, það verði ekki gert með stóru sleggjunni en verði þó gert. Þegar hafa Ástralir meinað börnum yngri en 15 ára aðgang að ákveðnum samfélagsmiðlum. Áströlsk hjón sem rætt var við í Torginu segja almenna ánægju í samfélaginu með bannið, ríkisstjórnin hafi tekið ákvörðun sem öllum beri að fylgja svo auðvelt hafi reynst að færa rök fyrir banninu. Í umræðuþættinum Torginu í kvöld var rætt um símabann í skólum og samfélagsmiðlabann. Almennur samhljómur virtist vera á meðal áhorfenda um að setja ætti á samfélagsmiðlabann fyrir ungmenni yngri en 15 ára á Íslandi. Frekari samfélagsmiðlafræðslu ábótavant Snjallsímar og samfélagsmiðlar reynast ekki vera eina vandamálið, í snjallsímum eru öpp sem hönnuð eru til þess að halda athygli notandans og veita skammtímaánægju. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir, verkefnastjóri hjá áfengis- og vímuefnaráðgjöf Landspítalans, segir að snjallsímanotkun í dag sé eins og að setja á sig reykgrímu og ganga inn í brennandi hús, til þess að leysa vandamálið þurfi fyrst að slökkva eldinn. Viðmælendur Torgsins sammældust um að fræða þyrfti börn enn frekar um hættur samfélagsmiðla. Eðli miðlanna sé mismunandi og hætturnar sömuleiðis. Í umræðuþættinum Torginu í kvöld var rætt um símabann í skólum og samfélagsmiðlabann. Almennur samhljómur virtist vera á meðal áhorfenda um að setja ætti á samfélagsmiðlabann fyrir ungmenni yngri en 15 ára á Íslandi.