Innanríkisráðherrann segir af sér

Mikið tjón varð af völdum óveðursins.EPA / NUNO VEIGA Innanríkisráðherra Portúgal, María Lucia Amaral, sagði af sér í gær eftir gagnrýni á viðbrögð innanríkisráðuneytisins og ríkisstjórnarinnar við miklu óveðri og flóðum sem geisað hafa í Portúgal undanfarnar vikur. Að minnsta kosti sjö manns fórust. Óveðrið olli miklu tjóni sem talið er að nemi um fjórum milljörðum evra. Forsætisráðherra landsins, miðju-hægrimaðurinn Luis Montenegro, mun fylla tímabundið í skarð Amaral.