Móðir bandarískrar sjónvarpskonu enn ófundinn - FBI birtir myndir af meintum ræningja

Móðir bandarísku sjónvarpskonunnar Savannah Guthrie, er enn leitað eftir að hafa verið horfið frá heimili sínu í Tuscon, Arizona í Bandaríkjunum fyrir rúmri viku. Yfirvöld telja að henni hafi verið rænt. Tilkynnt var um hvarf Nancy Guthrie, sem er 84 ára gömul, þann 1. febrúar. Ekkert hefur spurst til hennar frá því 29. janúar. Tilkynnt var um hvarf hennar eftir að Guthrie mætti ekki til sunnudagsmessu sem hún var vön að sækja. Átti við öryggismyndavélar Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, birti fyrr í dag myndir úr eftirlitsmyndavélum við heimili Guthrie. Á myndunum sést grímuklæddur maður við inngang heimilis Guthrie. Maðurinn virðist hafa átt við öryggismyndavélarnar en FBI hefur tekist að endurheimta hluta efnisins. Unnið er að því að bera kennsl á manninn, maðurinn er talinn hafa verið vopnaður. Lögregla leitar alríkislögreglan nú til almennings; 50.000 dollara verðlaunafé býðst þeim sem getur veitt frekari upplýsingar. Savannah Guthrie, dóttir Nancy Guthrie, er sjónvarpskona hjá NBC í Bandaríkjunum. Í mynbandi sem gefið er út á vegum fjölskyldunnar þann 5. febrúar les hún upp yfirlýsingu frá sér og systkinum sínum þar sem hún biðlar til meintra ræningja móður sinnar um að hafa samband við fjölskylduna. Einnig bað hún um haldbærar sannanir á því að móðir hennar væri enn á lífi. Engin svör hafa enn borist. Nancy er á lyfjum við háum blóðþrýstingi og getur ekki hreyft sig mikið án aðstoðar. Rannsókn lögreglu hefur leitt það í ljós að Nancy virtist ekki hafa farið sjálfviljug út af heimilinu. Lögregla bindur vonir við að endurheimt frekari myndbanda úr öryggismyndavélinni við húsið muni varpa skýrara ljósi á atburði kvöldsins.