Útilokar ekki innrás Rússa á Kólaskaga

Eirik Kristoffersen varnarmálaráðherra Noregs, segir að ekki sé hægt að útiloka að Rússar hernemi landsvæði í Noregi til að verja kjarnorkuvopn sín og búnað á Kólaskaga ef til átaka kæmi milli Rússa og Atlantshafsbandalagsins. Þetta kom fram í viðtali breska fjölmiðilsins Guardian við Kristoffersen. „Við útilokum ekki að Rússar sölsi undir sig land til þess að verja þeirra eigin kjarnorkuvopnagetu, sem er það eina sem þeir eiga eftir sem raunverulega ógnar Bandaríkjunum,“ sagði Kristoffersen. Hann bætti við að Rússar ásælist ekki Kólaskaga á sama hátt og þeir ásælast Úkraínu eða landsvæði sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum, heldur væri mikið af kjarnorkuvopnum Rússa geymd á Kólaskaga, skammt frá landamærum Noregs. Þar með talið kjarnorkukafbátar, flugskeyti og flugvélar. Kristoffersen hefur lagt til að komið verði á fót beinni her – samskiptalínu milli Moskvu og Oslóar til að hægt sé að koma í veg fyrir stigmögnun átaka ef einhver misskilningur yrði. Aðgerðir Rússa í hánorðri hefðu almennt verið vægari en við Eystrasaltið. „Fram til þessa höfum við séð að brot á lofthelgi á okkar svæði sem hefur byggt á misskilningi. Rússar eru ítrekað að trufla GPS-staðsetningarkerfi og við teljum að þetta hafi líka áhrif á flugvélar þeirra,“ sagði Kristoffersen. „Þeir hafa ekki sagt til um það en við höfum séð að þegar eitthvað gerist eins og brot á lofthelgi, þá gerist það yfirleitt vegna reynsluleysis flugmannanna. Þegar við ræðum þetta við Rússana, þá svara þeir í raun á mjög fagmannlegan og fyrirsjáanlegan máta,“ sagði Kristoffersen.