Sænsku systkinin Rasmus og Isabella Wranå eru Ólympíumeistarar í tvenndarleik í krullu. Systkinin unnu bandaríska liðið í úrslitaleik. Isabella er 28 ára og er á sínum fyrstu Ólympíuleikum. Rasmus er 31 árs og á sínum þriðju leikum. Þau unnu bandaríska teymið Cory Thiesse og Korey Dropkin í úrslitaleik 6-5. Systkynin koma úr mikilli krullufjölskyldu en þykja nokkuð ólík. Isabella sýndi stáltaugar með lokaskotinu sem tryggði gullið. Isabella átti lokaskotið Aðdáendur í höllinni voru á bandi Bandaríkjamanna en sænsku systkinin sýndu mikla yfirvegun. Að lokum var það Isabella sem átti vinningsskotið undir lokin, sem bróðir hennar sópaði á réttan stað. Þau skutu bandaríska steininum af hringnum og unnu þar með spennusigur. Bandaríkin leiddu 4-5 fyrir úrslitalotuna. „Þetta var fullkomið skot í lokin. En auðvitað var ég stressuð. Þetta var síðasta skotið og ef þú nærð því tekurðu gull. En mér leið eins og við hefðum haldið ró okkar. Við töluðum um hvernig ég myndi kasta steininum og ég vissi að ég væri með góðan mann á kústinum,“ sagði Isabella. Faðirinn þjálfaði þau Systkynin eru alin upp í krullu og var í raun stillt upp sem keppinautum í æsku. Þrátt fyrir að vera ólík hafa þau fundið réttu blönduna. „Þau eru með tvo mismunandi persónuleika á svellinu, svo þetta snýst um að finna þessa blöndu þar sem þau hjálpa hvort öðru. Þetta snýst um að finna hvernig þau tala við hvort annað. Mér finnst þau hafa virkilega, virkilega, neglt þetta síðustu ár og þú sást afraksturinn hér,“ sagði þjálfarinn Alison Kreviazuk. Systkinin urðu heimsmeistarar árið 2024 og voru áður þjálfuð af föður þeirra, Mats Wranå. Móðir þeirra Monika er einnig krullari og leikur í tvenndarleik með Mats. Leiðin að úrslitunum var nokkuð brösug en þau töpuðu þrisvar í undankeppninni. Sænskir fjölmiðlar töluðu meira að segja um „krullufíaskó“. En systkynin náðu að leiða það hjá sér og stóðu uppi sem Ólympíumeistarar. Ekki einu systkynin þennan dag Sama dag unnu önnur systkyni til verðlauna en Slóvenía vann í blandaðri keppni í stíðastökki. Þar unnu systkinin Domen og Nika Prevc gull ásamt Anze Lanisek og Nika Vodan. Það hefur gerst nokkuð oft í sögunni að systkyni vinni til verðlaun en það er þó öllu sjaldgæfara að systkyni vinni saman til gullverðlauna í einum og sama flokknum. Sögulegt hjá Bandaríkjamönnum Þrátt fyrir tapið var þetta söguleg frammistaða hjá Bandaríkjunum. Þetta var í fyrsta sinn sem blandað lið kemst í úrslit og í fyrsta sinn sem kona vinnur medalíu fyrir Bandaríkin í krullu. Þau Thiesse og Dropkin eru bæði staðsett í Duluth í Minnesota-fylki og þekkjast frá því í háskóla. Ítalir tóku enn eitt bronsið Ítalía tók bronsið eftir 5-3 sigur gegn Bretum. Ítalir eru ríkjandi Ólympíumeistarar og ætluðu sér meira. Constantini er heimamaður í Cortina og var uppáhald ítalskra áhorfenda á svæðinu. Ítalir hafa raunar fengið afar mörg brons, sjö alls. Þeir eru með 11 medalíur í heildina og Norðmenn með 12. Iðulega er miðað við gullverðlaun í medalíusöfnun og þar eru Norðmenn með sex og næstu lönd þrjú.