„Þá ákváðum við að taka skrefið og senda á Alþingi“

Ráðið lýsti óánægju sinni með stöðu almenningssamgangna á Vestfjörðum í umsögn um samgönguáætlun til Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. „Foreldrar okkar eru í vinnu og geta ekki skutlað hvern einasta dag og sótt. Þess vegna þurfum við að taka rúturnar,“ segir Hildur Ása Gísladóttir, formaður ungmennaráðs Vestfjarða. Hildur er í tíunda bekk og býr á Bíldudal. Hún er ein þeirra sem nota rútuferðirnar til að komast á milli bæjanna til að hitta vini, sækja viðburði eða æfa íþróttir. Vegagerðin hefur séð um akstur milli Patreksfjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals. Eftir sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar hyggst Vegagerðin hætta akstrinum 1. mars. Hildur er ein þeirra sem nota rútuferðirnar til að komast á milli bæjanna til að hitta vini, sækja viðburði eða æfa íþróttir. Ráðið gagnrýnir enn fremur skort á almenningssamgöngum milli bæja á Vestfjörðum. „Það er bara ekki neitt í boði,“ segir Hildur. Hún bendir á að nemendur af sunnanverðum Vestfjörðum sem sækja Menntaskólann á Ísafirði þurfa að reiða sig á að fá far eða að foreldrar geti sótt þau til að komast heim um helgar. Vegagerðin kynnti nýlega breytingar á leiðakerfi landsbyggðarvagna Strætó. Aðeins ein leið Strætó fer á Vestfirði, leið 59 milli Reykjavíkur og Hólmavíkur. Hildur gagnrýnir að engar leiðir liggi um Vestfirðina. Ungmennaráð Vestfjarða er skipað börnum á aldrinum 13-18 ára og er ráðgefandi nefnd fyrir stjórn Fjórðungssambands Vestfjarða. Á fundum með sveitarstjórnarfólki kynnti ráðið sér hvað væri fyrirhugað í samgöngum á svæðinu. Í kjölfar umræðna var ákveðið að senda umsögn til Alþingis. Ráðið gagnrýnir að enginn samráðsfundur um leiðakerfið hafi verið haldinn á Vestfjörðum líkt og gert var í öðrum landshlutum. Hildur segir sárt að Vestfirðir séu skildir eftir. Þá segir Hildur alla nemendur eiga að hafa færi á að komast heim um helgar og hitta fjölskyldu sína. „Þetta er hægt allstaðar annars staðar á landinu og það er bara ekki einu sinni reynt hér.“