Eirik Kristoffersen, hershöfðingi og yfirmaður herafla Noregs, segir að ekki sé hægt að útiloka að Rússar hernemi landsvæði í Noregi til að verja kjarnorkuvopn sín og búnað á Kólaskaga ef til átaka kæmi milli Rússa og Atlantshafsbandalagsins. Þetta kom fram í viðtali breska fjölmiðilsins Guardian við Kristoffersen. „Við útilokum ekki að Rússar sölsi undir sig land til þess að verja þeirra eigin kjarnorkuvopnagetu, sem er það eina sem þeir eiga eftir sem raunverulega ógnar Bandaríkjunum,“ sagði Kristoffersen. Hann bætti við að Rússar ásælist ekki landsvæði í Noregi á sama hátt og þeir ásælast Úkraínu eða landsvæði sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum. Stór hluti kjarnorkuvopnabúrs Rússa er á Kólaskaga, skammt frá landamærum Noregs. Þar á meðal eru kjarnorkukafbátar, flugskeyti og flugvélar sem geta borið kjarnavopn. Í viðtalinu ræðir Kristoffersen um samskipti Noregs og Rússlands. Löndin eiga í farsælu samstarfi um leit og björgun á sjó í Barentshafi og eiga reglulega fundi á landamærunum. Rússar trufla staðsetningartæki eigin flugvéla Kristoffersen hefur lagt til að komið verði á fót beinni samskiptalínu milli Moskvu og Oslóar til að hægt sé að koma í veg fyrir stigmögnun átaka sem byggð væru á misskilningi. Hann segir einnig að aðgerðir Rússneska hersins í hánorðri hafa almennt ekki verið eins herská og við Eystrasaltið. „Fram til þessa hafa ítrekuð brot á lofthelgi okkar verið byggð á misskilningi. Rússar eru mikið að trufla GPS-staðsetningarkerfi og við teljum að þetta hafi líka áhrif á flugvélar þeirra,“ sagði Kristoffersen. „Þeir hafa ekki sagt til um það en við höfum séð að þegar eitthvað gerist eins og brot á lofthelgi, þá gerist það yfirleitt vegna reynsluleysis flugmannanna. Þegar við ræðum þetta við Rússana, þá svara þeir í raun á mjög fagmannlegan og fyrirsjáanlegan hátt,“ sagði Kristoffersen.