Bretar ætla að tvöfalda fjölda breskra hermanna í Noregi á næstu þremur árum til að styrkja varnir á norðurslóðum. Varnarmálaráðherra Breta, John Healey, tilkynnti um þetta í fréttatilkynningu í aðdraganda heimsóknar sinnar til bresku herstöðvarinnar Camp Viking í Norður-Noregi í dag. Breskum hermönnum verður fjölgað þar úr 1.000 manns í 2.000 á næstu þremur árum. Herstöðin hefur verið þar frá árinu 2023. Hann staðfesti einnig að Bretar munu gegna lykilhlutverki í Arctic Sentry Mission sem er fjölþjóðaverkefni Atlantshafsbandalagsins til að styrkja varnir á norðurslóðum. „Þörf fyrir varnir er að aukast og Rússland er mesta ógn við öryggi á Norðurheimskautinu og í hánorðri sem við höfum séð síðan í kalda stríðinu. Við sjáum að Pútín er að endurreisa hernaðarlega viðveru á svæðinu, þar með að opna gamlar herstöðvar úr kalda stríðinu,“ sagði Healey. Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segir að ekki sé hægt að útiloka að Rússar hernemi landsvæði í Noregi til að verja kjarnorkuvopn sín og búnað á Kólaskaga ef til átaka kæmi milli Rússa og Atlantshafsbandalagsins. Þetta kom fram í viðtali breska fjölmiðilsins Guardian við Kristoffersen. Breska ríkisstjórnin hefur samþykkt að auka útgjöld til varnarmála upp í 2,6% af vergri þjóðarframleiðslu til ársins 2027, sem er mesta hækkun á framlögum til varnarmála síðan við lok kalda stríðsins.