Hryðjuverkamálið tekið fyrir í Hæstarétti í dag

Hæstiréttur tekur í dag fyrir hryðjuverkamálið svokallaða. Þeir Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathanson voru báðir dæmdir í Landsrétti fyrir stórfelld vopnalagabrot en sýknaðir af ákærum um tilraun til hryðjuverks. Málið snýr því aðallega að því hvort túlka megi sem svo að þeir hefðu gerst sekir um að skipuleggja hryðjuverk eða ekki. Þeir voru handteknir þann 21. september 2022 og ákærðir í desember á sama ári. Rannsókn á málinu hófst í ágúst á því ári eftir að lögreglu bárust upplýsingar um að Sindri Snær væri að búa til og selja þrívíddarprentuð vopn. Vopn frá honum voru tengd við skotárás í miðbænum og er talið að skotárásin hafi komið lögreglu á spor mannanna. Sindri Snær var þá handtekinn en honum sleppt eftir um vikulangt gæsluvarðhald. Á þeim tíma komst lögregla yfir gögn úr farsíma Sindra þar sem samskipti hans við Ísidór Nathanson komu fram. Talið var mögulegt að þau samskipti sneru að skipulagningu á hryðjuverki. Lögregla vildi fyrst um sinn hlera mennina tvo og hafði fengið leyfi til þess að gera það í fjórar vikur. Þeir ræddu meðal annars nasisma, fjöldamorð og vopnakaup og sölur. Í fyrstu skýrslutöku viðurkenndi Sindi að hann hefði átt umrædd samtöl við Ísidór, þeir væru vinir og á milli þeirra ríkti sérstakur húmor. Um svipað leyti og lögregla fékk heimild til hlerunar fluttist forræðið á rannsókninni yfir til embættis ríkislögreglustjóra sem mat það svo að handtaka þyrfti mennina strax. Daginn eftir var blásið til blaðamannafundar þar sem tilkynnt var að tekist hefði að koma í veg fyrir fyrirhuguð hryðjuverk hér á landi. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, þáverandi ríkislögreglustjóri, sagði sig frá málinu eftir að nafn föður hennar kom upp við skýrslutökur. Gerð var húsleit á heimili föður hennar, Guðjóns Valdimarssonar. Aðalmeðferð í málinu hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar 2024, um einu og hálfu ári eftir að Sindri Snær var fyrst handtekinn. Þar voru þeir báðir sýknaðir af tilraun til hryðjuverka og svo aftur sýknaðir af þeirri ákæru fyrir Landsrétti. Telur að þyngja eigi refsingu tvímenninganna Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur áður sagt að mikilvægt sé að Hæstiréttur fjalli um lagatúlkun Landsréttar í málinu. Hún hefur óskað eftir því að refsing tvímenninganna verði þyngd. Í umsögn sinni segir Sigríður að tvímenningarnir hafi verið ranglega sýknaðir af brotunum og segir dóm Landsréttar bersýnilega rangan. Í ákvörðun Hæstaréttar segir að málið kunni að hafa verulega almenna þýðingu.