Patreksfjörður: 649 tonna afli í janúar

Alls var landað 649 tonnum af bonfiski í Patrekshöfn í síðasta mánuði. Togarinn Vestri BA fór sjö veiðiferðir og var samtals með 324 tonna afla. Tveir línubátar reru í mánuðinum. Núpur BA fór sex veiðiferðir og var með 321 tonn. Loks var Sindri BA með 4 tonn í þremur róðrum.