Úkraínski magasleðakeppandinn Vladyslav Heraskevych hefur notast við hjálm á æfingum sínum á Vetrarólympíuleikunum sem sýnir myndir af úkraínsku íþróttafólki sem hafa fallið eftir innrás Rússa í Úkraínu. Alþjóðaólympíunefndin, IOC, hefur þó bannað notkun hjálmsins á vettvangi leikanna. Heraskevych bar hjálminn fyrst á æfingu í vikunni. Í kjölfarið áttu sér stað viðræður við fulltrúa IOC og var honum tilkynnt að notkun hjálmsins væri ekki heimil. Honum var þó veitt leyfi til að bera svart sorgarband sem málamiðlun. Mætti aftur með hjálminn þrátt fyrir tiltal Daginn eftir mætti Heraskevych þó aftur með hjálminn og lauk tveimur æfingum með minningarhjálminn. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér segir hann að hjálmurinn brjóti ekki gegn 50. grein reglna IOC, sem kveður á um bann við pólitískum skilaboðum eða ýti undir mismunun á vettvangi leikanna. Hann segir tilganginn einungis vera að minnast látinna íþróttamanna. Eftir því sem haft er eftir Heraskevych í erlendum fjölmiðlum hófust samskipti við IOC á óopinberum æfingum og síðar var haldinn fundur í ólympíuþorpinu með fulltrúum IOC og úkraínsku ólympíunefndarinni þar sem bannið var formlega staðfest. Gæti verið vísað úr keppni en nýtur stuðnings Zelensky Heraskevych segir málið nú vera í skoðun hjá úkraínsku ólympíunefndinni og útilokar ekki að hann geti átt yfir höfði sér viðurlög, jafnvel brottvísun úr keppni, haldi hann áfram að nota hjálminn. Keppni í magasleða hefst í fyrramálið. Málið vakti athygli í fyrradag þegar Heraskevych birtist fyrst á brautinni með hjálminn. Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, hvatti í kjölfarið Alþjóðaólympíunefndina til að „fela ekki sannleikann“ um fórnarlömb stríðsins. Úkraínska ólympíunefndin fór fram á að notkun hjálmsins yrði heimiluð og taldi hana samræmast reglum IOC. Alþjóðaólympíunefndin hélt banninu hins vegar til streitu en samþykkti notkun svarts sorgarborða.