Frestar tón­leikum heilsunnar vegna

Bandaríska söngkonan Demi Lovato hefur frestað tónleikaferðalagi sínu vegna heilsufarsástæðna. Söngkonan segist með ákvörðun sinni vera að setja heilsu sína í forgang en tæp tíu ár eru frá því söngkonan var nær dauða en lífi eftir að hafa tekið of stóran skammt af fíkniefnum.