Britney selur réttinn að allri tónlistinni

Tónlistarkonan Britney Spears, oft kölluð poppprinsessan, seldi réttinn að allri tónlist sinni í desember. Kaupverðið var um 200 milljónir dollara sem eru jafnvirði það bil 25 milljarða íslenskra króna. BBC greinir frá því að kaupandinn sé útgáfufyrirtækið Primary Wave. Hvorki fyrirtækið né talsmenn Britney vildu tjá sig við BBC. Britney er 44 ára og fyrir tveimur árum tilkynnti hún að hún ætlaði aldrei að snúa aftur í tónlistarbransann. Hún hefur þó samið tónlist fyrir aðra en gaf síðast sjálf út lagið Mind Your Business með tónlistarmanninum Will.i.am. og 2022 sendi hún frá sér lagið Hold Me Closer, dúett með Elton John. Britney Spears þarf vart að kynna. Hún var ekki orðin 17 ára þegar henni skaut snögglega upp á stjörnuhimininn með laginu ...Baby One More Time. Fljótlega átti hún lítið sem ekkert einkalíf og árum saman eltu ljósmyndarara hana hvert fótmál. Árið 2007 var hún orðin mjög veik og var vistuð nauðug á geðdeild. Hún var svipt sjálfræði og missti forræði yfir börnum sínum tveimur ári síðar. Faðir Spears var lögráðamaður hennar um langa hríð en árið 2020 skapaðist mikil umræða um stöðu hennar. Til varð myllumerkið #freeBritney sem fólk notaði til að lýsa stuðningi sínum við að hún fengi að ráða sér sjálf og í nóvember 2021 úrskurðaði dómstóll í Los Angeles að hún skyldi fá fullt sjálfræði. Á meðal þekktustu laga Britney Spears er fyrrnefnd ...Baby One More Time, Oops!.. I Did It Again, Toxic og Gimme More.